Allir að mótmæla Gvantanamóbúðunum. Smellið á borðann hérna til hægri og komið með í ferðalag til Kúbu til að loka búðunum.
Takk takk
Hin eina sanna!!!!!
Allir að mótmæla Gvantanamóbúðunum. Smellið á borðann hérna til hægri og komið með í ferðalag til Kúbu til að loka búðunum.
Gleðilegt ár öllsömul.
Jólin liðin í góðu yfirlæti fyrir norðan og áramótunum eytt í sprengibrjálæðinni hérna í Reykjavík. Alveg yndislegur tími með fjölskyldunni, svona eins og jólin og áramótin eiga að vera.
En ég verð nú að segja að ég er ekki mjög hrifin af þessu flugeldastandi um áramótin. Jú jú það er allt í lagi að horfa á nokkra flugelda en mér finnst þetta nú vera að fara út í öfgar. Sérstaklega öll mengunin sem fylgir, hérna í borginni sást varla milli húsa fyrir mengun og svifryksmengunin á gamlárs var svo mikil að ekki náðist að mæla hana. Mikið er nú yndislegt að standa úti á gamlárskvöld og anda þessu ógeði oní lungun á sér. Svo er verið að tala um skaðsemi reykinga.
Síðan eru það allar umbúðirnar sem liggja út um allar götur og ekki eru eigendurnir að tína upp eftir sig. Flugeldarusl út um allar götur og allar þessar umbúðir fara beina leið í ruslið, því ekki hægt að endurvinna þetta rusl.
Er það virkilega besta leiðin til að kveðja gamla árið og fagna nýju með því að sprengja frá sér allt vit, menga umhverfið og fyrir sjálfum okkur í leiðinni?
Tja kona spyr sig
Blogga já
Síðan doppaskoppa er orðin aðgengileg ölllum.
Umferðarljósa manneskjan!!
Little Britain
Karlar farnir að taka við sér í jafnréttisbaráttunni.
Náttúruvernd í nýju ljósi
Ísland, öruggasta land í heimi?
Á Saint Patricks day, í hosteli í Tasmaníu fyrir 5 árum, orti myndarlegur karlmaður fallega vísu til mín: